![Urriðaholtsskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/5984836e-7da7-4fba-9758-b9f456096bf4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Urriðaholtsskóli](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-b6fb2be3-b2c4-4b4f-9d4b-7647eae6bda9.png?w=1200&q=75&auto=format)
Urriðaholtsskóli auglýsir eftir starfsfólki í Frístund
Frístundastarf fer fram frá kl. 13:30 og stendur til kl. 16:30. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi. Í frístund dvelja börn frá 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur við leik og ýmis fjölbreytt verkefni. Möguleiki á 100% starfi.
Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt stefnu Urriðaholtsskóla og kom að uppbyggingu skólasamfélagsins. Gildi skólans eru; virðing, ábyrgð, umhverfi. Í skólanum verða tæplega 600 nemendur frá leikskóla og upp grunnskólann skólaárið 2024-25. Við skólann starfa vel yfir 100 einstaklingar sem hafa það að markmiði að mæta börnum eftir þörfum þeirra í leik og starfi og koma til móts við áhuga þeirra og þarfir. Vel er búið að börnum og fullorðnum og aðstaða góð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.urridaholtsskoli.is
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
- Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu og faglegu frístundastarfi
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum út frá væntingum og gildum Urriðaholtsskóla
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur
- Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Sinni frágangi á starfssvæði frístundar í lok dags
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla og áhugi af starfi með börnum er æskileg
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Kvíslarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/9455581b-1d02-4f9a-aad3-672fcba2dc41.png?w=256&q=75&auto=format)
![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Reykhólahreppur](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-a5837fe8-4c70-45a9-b3dd-044a0ef658b5.png?w=256&q=75&auto=format)
![Siðmennt](https://alfredprod.imgix.net/logo/720620c7-3c86-4e29-947a-c30e761203a3.png?w=256&q=75&auto=format)
![Fossvogsskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-240ef19a-04b8-4d2a-9d32-ac076fc13519.png?w=256&q=75&auto=format)
![Kvíslarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/9455581b-1d02-4f9a-aad3-672fcba2dc41.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Ægisborg](https://alfredprod.imgix.net/logo/80a5d666-ff48-495a-a9dc-cc0d15de78cc.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Urriðaból Garðabæ](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-9ff17e1e-0c13-486c-ad88-8a0e78994b1a.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Rafíþróttadeild Keflavíkur](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-80dfb497-c904-484b-84f5-6ae501c1799b.png?w=256&q=75&auto=format)
![FOB ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3469aab5-9506-4a7c-868c-8b75ddf24e87.jpeg?w=256&q=75&auto=format)