
Héðinshurðir ehf
Héðinshurðir ehf er dótturfyrirtæki Héðins hf og hefur verið með iðnaðar- og bílskúrshurðir á boðstólnum í áraraðir og áunnið sér traust viðskiptavina fyrir vandaðar hurðir sem standast sveiflukennt íslenskt veðurfar með glæsibrag.
Starfsmenns Héðinshurða veita framúrskarandi þjónustu og sjá m.a. um sölu, uppsetningar, viðhald og viðgerðir á iðnaðar- og bílskúrshurðum.

Uppsetningarmaður hurða
Héðinshurðir ehf. leitar að öflugum starfsmanni til framtíðarstarfa
Vegna aukinna verkefna leitum við hjá Héðinshurðum ehf. að áreiðanlegum og duglegum einstaklingi til starfa við uppsetningu og þjónustu á hurðum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í framsæknu fyrirtæki með góðan starfsanda og vandaða þjálfun.
Við leitum að einstaklingi sem er stundvís, ábyrgur og góður í mannlegum samskiptum. Starfið hentar þeim sem hafa góða verklega færni og vilja læra nýja hluti með aðstoð reynslumikilla samstarfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning á bílskúrs- og iðnaðarhurðum
- Viðgerðir og viðhald á hurðum og hurðabúnaði
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini á verkstað
- Ýmis almenn verk í tengslum við hurðaruppsetningar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Iðnaðarmenntun eða sambærileg reynsla er kostur en ekki skilyrði
- Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
- Bílpróf (B)
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Þjálfun og stuðningur frá sérfræðingum
- Matarstyrkur
- Vinnufatnaður og vinnusími
- Frábær starfsandi og sterk liðsheild
Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur8. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Íshella 10, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
HandlagniMetnaðurÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSmíðarÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í áhaldahús
Borgarbyggð

Experienced Mechanic Arctic Adventures
Arctic Adventures

Meiraprófsbílstjóri óskast á Borganes / C driver in Borganes
Íslenska gámafélagið

Vélamaður á Reyðarfirði
Vegagerðin

Sölustjóri CAT Lyftara og vöruhúsalausna
Klettur - sala og þjónusta ehf

MT Ísland óskar eftir öflugum múrara!
MT Ísland

Yfirverkstjóri á Selfossi
Vegagerðin

Starfsfólk í Straumsvík
HRT þjónusta ehf.

Alhliða störf í eignaumsýslu - Sumarstarf
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Stálreisingarverkstjóri
Ístak hf

Bifvélavirki / Mechanic - Summer job (May - Oct)
Lotus Car Rental ehf.

Húsasmiður með reynslu óskast
Stéttafélagið ehf.