Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara skólaárið 2025 - 2026. Í skólanum eru 450 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur

•    Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
•    Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
•    Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
•    Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
•    Reynsla af kennslu í grunnskóla
•    Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
•    Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
•    Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
•    Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
•    Reynsla af leiðsagnarnámi æskileg

Hlunnindi

Starfsmenn sveitarfélagsins geta fengið hreyfistyrk, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands eftir 3 - 6 mánuði í starfi. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Auglýsing birt7. júlí 2025
Umsóknarfrestur25. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar