Breiðholtsskóli
Breiðholtsskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í 50%-100% starf.

Óskað er eftir umsjónarkennara í 50%-100% starf á miðstigi.

Breiðholtsskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og þar sækja nám um 360 nemendur og við hann starfa 75 starfsmenn. Skólinn er í hjarta Breiðholtshverfis í Reykjavík og stendur við Arnarbakka 1 - 3. Við skólann er góð útisundlaug, stórt íþróttahús og fallegur hátíðarsalur.
Við skólann er lögð áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Við sem hér störfum erum stolt af skólanum okkar sem státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna.Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á skapandi og skemmtilegt skólastarf, læsi, félagsfærni og sjálfseflingu.
Lögð er áhersla á samvinnu starfsmanna þar sem allir taka virkan þátt í þróun skólastarfsins í anda Aðalnámskrár og Menntastefnu Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur.
  • Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
  • Að þróa framsækið skólastarf í takti við stefnu skólans.
  • Að vinna í teymi með öðru starfsfólki.
  • Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi.
  • Lipurð í samskiptum og jákvæðni.
  • Góð tölvu- og tæknikunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti (C2)
  • Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt1. október 2025
Umsóknarfrestur14. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Arnarbakki 1-3, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar