
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara á yngsta stig
Sjálandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í 1. bekk. Nauðsynlegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða afleysingu þetta skólaár.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru 280 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allir starfsmenn vinna saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Aðstaða nemenda og starfsfólks er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag náms og kennslu nemenda á yngsta stigi
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Teymisvinna
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Faglegur metnaður
- Áhugi á skólaþróun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
Auglýsing birt24. september 2025
Umsóknarfrestur14. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Langalína 8, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiKennariSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri óskast í Læk á yngri deild
Lækur

Starfskraftur á 5 ára kjarna í Barnskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ
Hjallastefnan

Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Urriðaholtsskóli óskar eftir ÍSAT-kennara á grunnskólastig
Urriðaholtsskóli

ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Prófdómari í ökuprófum á höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í Núp
Núpur

Uppsetning á nemendasöngleik Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ungbarnaleikskólinn Ársól