

Umsjónarkennarar á miðstig
Varmárskóli leitar að þremur umsjónarkennurum á miðstigi.
Varmárskóli í Mosfellsbæ mun starfa sem tveir grunnskólar frá og með næsta hausti. Annars vegar sem Varmárskóli, fyrir nemendur í 1. - 6. bekk og hinsvegar sem nýr skóli, fyrir nemendur í 7. - 10. bekk. Skólinn leggur áherslu á að kennarar geti skipulagt nám nemenda þar sem nemendur vinna með tækni og í hópastarfi. Skólinn starfar í anda uppbyggingarstefnunnar og leggur áherslu á fjölbreytta kennsluhætti og teymiskennslu. Leitað er eftir kennurum sem hafa góða hæfni til skapa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Kennarar verða að hafa velferð nemenda að leiðarljósi í störfum sínum. Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.











