
HS Orka
HS Orka er framsækið og ört vaxandi orkufyrirtæki sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku og er uppbygging Auðlindagarðsins þar í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa tækifæri með fullnýtingu auðlindastrauma í takti við náttúruna og í sátt við samfélagið. Við erum í fararbroddi í orkuskiptum hér á landi og höfum sett okkur skýr og ábyrg markmið í loftslagsmálum.
Spennandi þróunarverkefni eru í undirbúningi á vegum fyrirtækisins, jafnt í jarðvarma sem vatnsafli, auk þess sem kostir vindorku eru til skoðunar til lengri tíma. Við erum þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins og framleiðum raforku í Svartsengisvirkjun, Reykjanesvirkjun, Brúarvirkjun, Fjarðarárvirkjunum og Múlavirkjun. Einnig seljum við heitt og kalt vatn til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, auk annarra auðlindastrauma í Auðlindagarðinum. Við miðlum líka raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda vítt og breytt um landið.
Við erum ótrúlega skemmtilegur hópur starfsfólks sem störfum í sveigjanlegu og fjölskylduvænu vinnuumhverfi þar sem heilbrigði, hollusta og vellíðan eru í öndvegi. Kaffið okkar er líka frábært! Mikil áhersla er lögð á lipurð í samskiptum, liðsheild og framsækni. Þannig náum við best markmiðum okkar um ábyrga auðlindanýtingu í sátt við samfélagið.
Við erum stærsta orkufyrirtæki landsins í einkaeigu. Eignarhaldið skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu þrettán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Umhirða og þrif
Meginverkefni er þrif og umhirða stöðvarhúsa og útisvæða orkuvera í Svartengi og á Reykjanesi.
Hæfniskröfur er reynsla sem nýtist í starfi og snyrtimennska..
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, frumkvæði og sjálfstæði ásamt góðri umgengni.
Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni og ábyrgð
Þrif og umhirða í orkuverum og á útisvæðum
Aðstoð við aðra starfsemi
Skráning á viðhaldi, eftirliti og bilunum í viðhaldskerfi
Auglýsing birt4. maí 2021
Umsóknarfrestur14. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Orkubraut 3, 240 Grindavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Óska eftir áreiðanlegu NPA aðstoðarfólki í tímabundið starf
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

Starfsmaður á orlofssvæði á Suðurlandi
Fagfélögin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Starfsmaður á þjónustustöð á Sauðárkróki
Vegagerðin

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Aðstoð á tannlæknastofu
Kjartan Gylfason ehf