
Sveitarfélagið Vogar
Þann 1. janúar 2006 var nafni Vatnsleysustrandarhrepps breytt í Sveitarfélagið Vogar, samhliða því að stjórnskipan sveitarfélagsins var breytt. Sveitarfélagið Vogar er næst landstærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum og nær yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga. Í sveitarfélaginu bjuggu rúmlega 1.200 manns þann 1. desember 2007. Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt síðastliðin ár, enda í Vogum mjög fjölskylduvænt og stutt að sækja atvinnu og þjónustu. Sveitarfélagið er því að vissu leyti nýtt, en byggir á gömlum og traustum grunni.
Sveitarfélagið Vogar er mjög vel staðsett. Í nágrenni við þjónustu og vinnumarkað höfuðborgarsvæðisins, en býður upp á rólegt og vinalegt umhverfi þar sem stutt er í náttúruna
Tómstundaleiðbeinandi
Viltu vinna með ungu fólki?
Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir þremur kröftugum og hugmyndaríkum starfsmönnum til starfa við Félagsmiðstöðina Boruna.
Félagsmiðstöðin býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára. Opið er þrjú kvöld í viku og eru alltaf tveir starfsmenn á vakt.
Um er að ræða eitt starf sem er c.a. 25% starf. Mun sá starfsmaður vera staðgengill forstöðumanns þegar þörf er á.
Einnig eru tvö önnur störf í boði fyrir tímavinnustarfsmenn.
Vinsamlegast athugið að umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára.
Menntunar- og hæfniskröfur
25% starf: Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið námi eða sé í námi í Tómstunda & félagsmálafræði eða sambærilegu. Reynsla sem nýtist í starfi. Áhugi á að vinna með unglingum. Frumkvæði, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð. Lipurð í mannlegum samskiptum.
Tímavinnustarfsmenn: Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi. Áhugi á að vinna með unglingum. Frumkvæði, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð. Lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsækjendur þurfa að:
- Vera orðnir tvítugir eða eldri.
- hafa hreint sakavottorð.
- jákvætt hugarfar
- hafa ökuréttindi.
Helstu verkefni og ábyrgð
25% starf: Skipulagning á faglegu tómstundastarfi fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára. Leiðbeina unglingum í starfi. Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk. Samráð við starfsfólk Stóru-Vogaskóla og nemendafélag. Samstarf við SamSuð (Samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum). Önnur verkefni sem Íþrótta- og tómstundafulltrúi felur viðkomandi.
Tímavinnustarfmenn: Skipulagning á faglegu tómstundastarfi fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára. Leiðbeina unglingum í starfi. Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk. Önnur verkefni sem Íþrótta- og tómstundafulltrúi felur viðkomandi.
Auglýsing birt14. maí 2020
Umsóknarfrestur14. júní 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Iðndalur 2, 190 Vogar
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Kennari í íslensku sem öðru máli – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsfulltrúi óskast í Seyðisfjarðarskóla
Seyðisfjarðarskóli

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir