

Tollverðir í Reykjavík - Spennandi störf í lifandi umhverfi
Stöður tollvarða í Reykjavík eru lausar til umsóknar hjá Skattinum - Tollgæslu Íslands. Störf tollvarða eru fjölbreytt og lifandi sem henta traustu og ábyrgu fólki af öllum kynjum.
Reynsla og þekking úr öðrum störfum nýtist vel í starfi tollvarða. Háskólamenntun er einnig eftirsóknarverð þar sem í mörgum verkefnum er áhersla á greiningarhæfni, talnalæsi, tölfræði, skýrslugerð og tölvufærni.
Í tengslum við ráðningu tollvarða þurfa umsækjendur að þreyta inntökupróf/líkamsgetupróf en dagsetning prófsins verður tilkynnt eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nánari upplýsingar um prófið á vefslóðinni Inntökupróf | Skatturinn - skattar og gjöld
Meginhlutverk Skattsins er að leggja grunn að samfélagslegri þjónustu með því að tryggja tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlar Skatturinn að jafnræði og virkri samkeppni og leggur sitt af mörkum til að vernda samfélagið.
- Greining á áhættu í vöru- og farþegaflæði og úrvinnsla gagna.
- Sérhæfðar leitir, svo sem í bílum, með gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv.
- Almennt tolleftirlit á vettvangi, svo sem í skipum, flugvélum, bílum, gámum, póstsendingum og með farþegum.
- Stúdentspróf eða menntun sem má meta til jafns við það.
- Greiningarhæfileikar.
- Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Gott andlegt og líkamlegt atgervi.
- Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Almenn ökuréttindi.
- 20 ára aldurstakmark.
- Hreint sakavottorð.
Íslenska









