Arion banki
Arion banki
Arion banki

Þjónusturáðgjafi trygginga á Akureyri

Við hjá Arion banka leitum að öflugum aðila í teymið okkar á Akureyri en við erum staðsett á Glerártorgi í sameiginlegu banka- og tryggingaútibúi Arion og Varðar trygginga.

Við leggjum okkur fram um að veita úrvals þjónustu og ráðgjöf á sviði trygginga og það skiptir okkur máli að finna áhugasama einstaklinga sem búa yfir frumkvæði, jákvæðni og hafa áhuga á að læra nýja hluti. Einnig er mikill kostur að búa yfir söludrifni og hafa ánægju af því að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á sviði trygginga 

  • Veita upplýsingar og faglega ráðgjöf í gegnum innlit, tölvupóst, síma og netspjall 

  • Svara fyrirspurnum um tryggingar, greiðslumál og tjónstilkynningar 

  • Að aðstoða viðskiptavini við að skilja tryggingar betur og læra á nýjungar 

  • Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni 

  • Ýmis önnur áhugaverð verkefni 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi 

  • Reynsla af störfum í tryggingaþjónustu er kostur 

  • Framúrskarandi þjónustulund og söludrifni 

  • Frumkvæði og góð samskiptahæfni 

  • Góð íslenskukunnátta en önnur tungumálakunnátta er kostur 

  • Jákvætt og uppbyggilegt viðhorf 

Auglýsing birt30. desember 2025
Umsóknarfrestur14. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar