Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Þjónustufulltrúi í þjónustuver Kópavogsbæjar

Þjónustuver Kópavogsbæjar óskar eftir þjónustufulltrúa

Þjónustuver Kópavogsbæjar sinnir móttöku fyrir íbúa, símsvörun og margvíslegum verkefnum í samvinnu við aðra starfsmenn bæjarins. Þjónustuverið kappkostar að veita stofnunum bæjarins og íbúum eins góða þjónustu og mögulegt er. Sú þjónusta er afar fjölbreytt, enda heyra stórir málaflokkar undir bæjarfélagið. Frekari upplýsingar um verkefni Kópavogsbæjar er að finna á vef bæjarins www.kopavogur.is

Helstu verkefni

Starfsmaður í þjónustuveri sinnir móttöku og almennri þjónustu viðskiptavina, símsvörun og upplýsingamiðlun fyrir bæjarskrifstofur Kópavogs, í samræmi við skilgreint hlutverk þjónustuvers. Þjónustufulltrúi tekur virkan þátt í vinnu við skráningu, uppfærslu og miðlun upplýsinga til jafnt innri sem ytri viðskiptavina. Um er að ræða mjög fjölbreytt og lifandi starf sem reynir á aðlögunarhæfni og lipurð í samskiptum. Um fullt starf er að ræða,

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni.
  • Stúdentspróf eða sambærilegt nám.
  • Þekking og reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
  • Góð tölvufærni.
  • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta er nauðsynleg, bæði í máli og ritun texta.
  • Góð pólskukunnátta er kostur.
  • Sjálfstæði, samviskusemi, vandvirkni og góð þjónustulund.

Umsóknarfrestur er til og með 16.maí 2021

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Hrönn Hauksdóttir, þjónustustjóri Þjónustuvers eða Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar í síma 441 0000. Einnig má senda fyrirspurnir á póstföngin [email protected] eða [email protected].

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar

Auglýsing birt30. apríl 2021
Umsóknarfrestur16. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar