Ison heildverslun
Ison heildverslun
Ison heildverslun

Þjónustufulltrúi hjá Ison

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til að bætast í hópinn okkar hjá Ison.

Starfið er fjölbreytt þjónustustarf þar sem þú ert í daglegum samskiptum við viðskiptavini okkar, tekur á móti pöntunum og fyrirspurnum og sinnir sýningarrými Ison.

Helstu verkefni

  • Þjónusta við viðskiptavini í sýningarrými
  • Símsvörun og tölvupóstsamskipti
  • Móttaka og skráning pantana
  • Samskipti og samvinna við lager
  • Ráðgjöf og upplýsingagjöf um vörur
  • Almenn þjónusta og tilfallandi verkefni

Við leitum að einstaklingi sem

  • hefur ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni
  • hefur góða íslenskukunnáttu í bæði ræðu og riti.
  • er tölvulæs og öruggur í almennri tölvuvinnu
  • er skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður
  • á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu
  • á auðvelt með að vinna með öðrum og leggja sitt af mörkum til góðs samstarfs

Það er mikill kostur ef viðkomandi hefur menntun í hársnyrtiiðn eða reynslu af störfum innan hárgreiðslugeirans. Þekking á vörumerkjum og vörum Ison er einnig kostur.

Starfshlutfall og vinnutími

Um er að ræða 90% starf með föstum vinnutíma frá kl. 9:00–16:00 alla virka daga. Starfið er staðbundið í húsnæði Ison að Skútuvogi 11A og krefst daglegrar viðveru á auglýstum vinnutíma.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina í sýningarrými Ison
  • Símsvörun og tölvupóstsamskipti við viðskiptavini
  • Móttaka, skráning og eftirfylgni pantana
  • Umsjón með daglegum rekstri og útliti sýningarrýmis
  • Samskipti og samvinna við lager vegna pantana og afhendinga
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf um vörur og vörumerki Ison
  • Úrlausn fyrirspurna og þjónustumála
  • Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 11A, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar