Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Þjónn / Waiter

Ertu að leita að skemmtilegu starfi í líflegu og alþjóðlegu umhverfi?

Hótel Reykjavík Saga óskar eftir að ráða til sín hressa þjóna í hlutastarf yfir sumartímann eða þjóna á kvöldvakt (2-2-3) á veitingastaðinn Fröken Reykjavík Kitchen & Bar.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki seinna en 21. maí 2025.

Möguleika á áframhaldandi vinnu um haustið með sveigjanlegu vaktarplani sem hægt er að aðlaga að stundarskrá ef þörf er á. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Fagleg móttaka gesta.
  • Almenn þjónusta við borð í veitingasal.
  • Upplýsingagjöf til gesta um matseðil og hráefni.
  • Halda vinnusvæði snyrtilegu og hreinu.
  • Þjónusta við gesti og sala.
  • Samvinna með öðrum deildum til að ná markmiðum í þjónustu gesta.

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund.
  • Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
  • Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
  • Góð enskukunnátta.
  • Lágmarksaldur 20 ára.

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Hótel Reykjavík Saga er einstaklega vel staðsett í hjarta miðbæjarins, nokkrum skrefum frá Tjörninni, Dómkirkjunni, listasöfnum og fjölmörgum verslunum og veitingastöðum. Hótelið skartar jafnframt tveimur glæsilegum og rúmgóðum þaksvölum með frábæru útsýni. Hlýlegt og sólríkt útisvæði er á bak við hótelið með trjám og bekkjum.

Á hótelinu má finna veitingastaðinn Fröken Reykjavik kitchen & bar. Á veitingastaðnum sem hannaður var með ívafi af Art Deco stíl er líflegur bar, vínherbergi, vetrargarður og opið eldhús þar sem þú getur fylgst með kokkunum elda matinn.

Lærðu meira um Hótel Reykjavík Sögu.

----------------

Are you looking for a fun job in a lively and international environment?

Hótel Reykjavík Saga is hiring cheerful part-time waiters for the summer season or a waiter to work evening shifts (2-2-3) at Fröken Reykjavík Kitchen & Bar.

Applicants must be available to start no later than May 21, 2025.

There is an opportunity to continue working into the autumn, with a flexible shift schedule that can be adjusted to fit school commitments, if needed. Join a diverse and close-knit team with strong team spirit, dedicated to delivering outstanding service!

Tasks:

  • Greeting and welcoming guests.
  • Table service in restaurant.
  • Present menu and ingredients.
  • Collaborate with other departments to ensure guest satisfaction.
  • General service and sale.
  • Maintain clean and organized work area.

Qualification:

  • Strong customer service skills.
  • Tidiness and attention to cleanliness.
  • Excellent communication and organizational abilities.
  • Initiative and ability to work independently.
  • Positive attitude and ability to perform under pressure.
  • Proficiency in English or Icelandic.
  • Must be at least 20 years old.

All applications are confidential.

Hotel Reykjavík Saga is an elegant 4-star hotel that opened in July 2022. Ideally situated at the very heart of the Reykjavík city center, the hotel is a stone's throw away from picturesque Lake Tjörnin, the cathedral and Reykjavík art museum, as well as the fantastic downtown shops and restaurants.

Within the Saga hotel, you’ll find the excellent restaurant Fröken Reykjavik Kitchen & Bar. Fröken’s prime location is only one of the things that will make your stay at this boutique hotel unique. You get to watch the chefs prepare Icelandic delicacies in real-time using quality ingredients sourced locally.

Learn more about Hotel Reykjavik Saga.

Auglýsing birt22. apríl 2025
Umsóknarfrestur29. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lækjargata 12, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar