Austurkór
Austurkór
Austurkór

Það er gott að vera þar sem gleðin býr

Leikskólinn Austurkór leitar að flottum liðsmönnum til starfa. Lausar eru stöður sérkennara, leikskólakennara og afleysingar.

Leikskólinn Austurkór er sex deilda leikskóli í Kórahverfinu í Kópavogi. Skólastarfið einkennist af flæðandi dagskipulagi, námslotum byggðum á gildi skólans, lýðræðislegum starfsaðferðum og útinámi. Starfshópurinn hefur byggt upp metnaðarfullt starf í fallegum skóla sem einkennist af notalegu vinnuumhverfi og mikilli liðsheild.

Ef þú telur þig eiga erindi í okkar flotta lið, endilega skelltu inn umsókn og ævintýrin bíða þín

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennari (ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra háskólamenntun eða leiðbeinandi)
  • Góð íslenskukunnátta
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur að einstaklingsmiðuðu uppeldi og menntun barnanna
  • Tekur þátt í skipulagi og verkefnum deildarinnar/skólans m.a. í þróunarverkefnum, foreldrasamstarfi, á starfsmannafundum og samstarfi við aðrar stofnanir.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
  • Starfshlutfall er umsemjanlegt

Frekari upplýsingar

Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Þeir sem eru ráðnir til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði.

Allar nánari upplýsingar veitir Harpa Dís aðstoðarleikskólastjóri í síma 4415102

Auglýsing birt2. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar