Austurkór
Austurkór
Austurkór

Það er gott að vera þar sem gleðin býr

Leikskólinn Austurkór leitar að flottum liðsmönnum til starfa í ýmsar stöður næsta skólaár. Laus er staða deildarstjóra, leikskólakennara og afleysingar.

Leikskólinn Austurkór er sex deilda leikskóli í Kórahverfinu í Kópavogi. Skólastarfið einkennist af flæðandi dagskipulagi, námslotum byggðum á gildi skólans, lýðræðislegum starfsaðferðum og útinámi. Starfshópurinn hefur byggt upp metnaðarfullt starf í fallegum skóla sem einkennist af notalegu vinnuumhverfi og mikilli liðsheild.

Ef þú telur þig eiga erindi í okkar flotta lið, endilega skelltu inn umsókn og ævintýrin bíða þín

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Ráðningartími frá upphafi haustannar 2021 eða samkomulag
  • Starfshlutfall er 100 % eða eftir samkomulagi

Frekari upplýsingar

Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Þeir sem eru ráðnir til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðný Anna leikskólastjóri í síma 441 5101

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennari (ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi)
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að einstaklingsmiðuðu uppeldi og menntun barnanna
Tekur þátt í skipulagi og verkefnum deildarinnar/skólans m.a. í þróunarverkefnum, foreldrasamstarfi, á starfsmannafundum og samstarfi við aðrar stofnanir.
Auglýsing birt1. ágúst 2021
Umsóknarfrestur15. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar