Advania - Gamalt
Advania - Gamalt
Advania - Gamalt

Teymisstjóri verkefnastýringar

Við leitum að öflugum og drífandi leiðtoga til að leiða teymi verkefnastjóra hjá rekstrarlausnum Advania. Þjónustulund, lipurð í samskiptum, brennandi áhugi á verkefnastýringu, lausnamiðuð nálgun í úrlausn verkefna og stuðningur við teymið er allt sem þarf.

Við bjóðum upp á margt skemmtilegt og áhugavert í vinnuumhverfi þínu eins og til dæmis:

  • Að starfa á líflegum vinnustað við hlið fagfólks í fremstu röð
  • Vera hluti af ástríðufullu teymi sem vinnur að því að skila viðskiptavinum auknu virði með faglegri verkefnastýringu
  • Vera í umhverfi þar sem hugmyndir og tillögur eru metnar að verðleikum, við hlustum á þitt framlag
  • Þú hefur áhrif - hjálpar til við að móta og byggja upp vinnulag, verkferla og aðferðarfræði við verkefnastýringu upplýsingatækniverkefna til framtíðar
  • Vera í nánu samstarfi við sérfræðinga, vörustjóra, sölumenn, tæknistjóra og viðskiptavini.
  • Búa til og viðhalda skýrum markmiðum, vegvísum og áætlunum fyrir teymið og viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
Yfirgripsmikil reynsla af verkefnastýringu
Hafa þróað og stýrt verkefnaskrá (program portfolio management) er kostur
Hafa starfsreynslu í tengslum við upplýsingatækni
Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð yfirsýn og leiðtogahæfni
Reynsla af notkun ferla- og beiðnakerfa er kostur
Drifkraft til að vinna að stöðugum framförum
Helstu verkefni og ábyrgð
Teymisstjóri ber ábyrgð á að verkefni sem unnin eru fyrir viðskiptavini Advania séu samkvæmt viðmiðum og ferlum félagsins, ásamt daglegri skipulagningu á heildar verkefnaskrá teymisins. Teymisstjóri þarf að hafa bakgrunn og reynslu í verkefnastýringu og geta unnið sjálfstætt í krefjandi aðstæðum.
Auglýsing birt27. apríl 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar