
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Teymisstjóri í íbúðakjarna Þorláksgeisla
Við auglýsum eftir framsýnum og metnaðarfullum teymisstjóra til starfa í búsetukjarna fyrir ungt fólk með einhverfu og skyldar raskanir. Um er að ræða 80-100% starf, að miklu leyti í dagvinnu en einnig er um kvöld og helgarvaktir að ræða. Þjónustan miðar að því að efla færni og auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Í boði er spennandi starf í íbúðakjarna þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf. Í Þorláksgeisla er mjög góður starfsandi og þar starfar samheldinn og jákvæður hópur fólks með fjölbreytta menntun og þekkingu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda.
Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum
Reynsla af starfi með einstaklingum með alvarlegar hegðunarraskanir æskileg
Reynsla af stjórnum æskileg
Afburðahæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð tölvukunnátta og bílpróf
Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
Bílpróf
Hreint sakarvottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni og ábyrgð
Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa og ber ábyrgð á að starfsemin mæti þeim.
Ber faglega ábyrgð, hefur umsjón með framkvæmd þjónustu og vinnur með íbúum á grundvelli einstaklingsáætlana.
Stýrir daglegum störfum annarra starfsmanna í samráði við forstöðumann.
Veitir leiðsögn og tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf.
Gerir einstaklingsáætlanir í samvinnu við íbúa, starfsmenn og forstöðumann.
Ber ábyrgð á eftirfylgd einstaklingsáætlana og tryggir reglubundið mat á framvindu þeirra samkvæmt verklagi þar um.
Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Leiðbeinir íbúum og aðstoðar þá við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf.
Auglýsing birt28. júlí 2022
Umsóknarfrestur11. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri stjórnsýslu og gæðamála hjá Barnavernd Reykjavíkur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ás styrktarfélag leitar að öflugum forstöðumanni
Ás styrktarfélag

Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?
NPA miðstöðin

Viðskiptastjóri einstaklinga á Selfossi
Íslandsbanki

Skemmtilegt starf í Búsetukjarna
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Lækjamót
Suðurnesjabær

Skemmtilegt starf í búsetukjarna
Búsetukjarninn Norðurhlíð

Deildarstjóri á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Símsvörun - þjónustuver
Teitur

Housekeeping / Cleaning
Heimaleiga

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Höfuð-borgin sértæk félagsmiðstöð