
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Teymisstjóri í heimaþjónustu
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða leitar að öflugum teymisstjóra í heimaþjónustu. Við samþætta heimaþjónustu starfa starfsmenn heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu saman með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum. Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða leggur áherslu á jákvætt og heilsueflandi starfsumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
Reynsla af stjórnun æskileg
Reynsla af þverfaglegu starfi og teymisvinnu
Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Íslensk ökuréttindi BE
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun, starfsmannahald og skipulag á starfsemi
Fagleg ábyrgð á veittri þjónustu teymis
Ráðgjöf til þjónustuþega og aðstandenda þeirra
Móttaka þjónustubeiðna, endurmat og gerð þjónustuáætlana út frá fyrirliggjandi upplýsingum frá LSH, Heilsugæslu og öðrum þjónustuaðilum
Ábyrgð á skráningu gagna í heimaþjónustugrunn og úrvinnsla tölfræðilegra gagna
Ber ábyrgð á að þjónustan sé í samræmi við leiðarljós, stefnu og markmið velferðarsviðs
Auglýsing birt18. febrúar 2021
Umsóknarfrestur26. febrúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lindargata 59, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniMetnaðurSkipulagStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (11)

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Deildarstjóri óskast í afleysingu
Frístundamiðstöðin Þorpið

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Verkstjóri á starfsstöð Samskipa í Vestmannaeyjum
Samskip

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali

Teymisstjóri launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali

Housekeeping / Cleaning
Heimaleiga