Eimskip
Eimskip
Eimskip

Tech Lead / Tæknilegur vörustjóri á ferla- og upplýsingatæknisviði Eimskips

Viltu taka þátt í að móta tæknilega framtíð Eimskips og leiða þróun lausna sem hafa raunveruleg áhrif á starfsemina?

Við leitum að öflugum Tech Lead / tæknilegum vörustjóra til að leiða tæknilega þróun tæknilausna hjá Eimskip. Hlutverkið hentar einstaklingi með sterkan tæknilegan bakgrunn sem hefur jafnframt góðan skilning á þörfum starfseminnar og getur tengt saman tækni, gögn og viðskiptalegan ávinning.

Megináherslan er á Microsoft Fabric, Power Platform, Azure og Microsoft AI-lausnir, með sérstaka áherslu á gögn, samþættingar, sjálfvirkni, viðskiptaferla og þróun AI-lausna.

Þú vinnur náið með sérfræðingum, vörustjórum, verkefnastjórum, ytri samstarfsaðilum og lykilfólki úr starfseminni og tekur virkan þátt í að byggja upp tæknilega getu Eimskips til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða tæknilega stefnu, hönnun og þróun lausna á Microsoft-vettvanginum.
  • Móta framtíðarsýn, arkitektúr, tæknilega vegvísa og forgangsröðun lausna.
  • Leiða uppbyggingu og nýtingu Microsoft Fabric fyrir gagnavinnslu, samþættingar, greiningu og AI.
  • Móta og þróa lausnir með Power Platform, meðal annars Power Apps, Power Automate, Dataverse og Copilot Studio.
  • Leiða tæknilega þróun AI- og Copilot-lausna, þar á meðal agent-lausna og sjálfvirkni sem nýtir gögn og ferla fyrirtækisins.
  • Móta samþættingar milli kerfa og stuðla að því að lausnir séu öruggar, skalanlegar og viðhaldsvænar.
  • Vinna náið með þróunarteymum og tæknilegum samstarfsaðilum og setja viðmið um arkitektúr, þróun, DevOps og gæði.
  • Greina nýja tækni og meta tækifæri til að nýta hana til að skapa virði fyrir starfsemina.
  • Styðja við aðra sérfræðinga og stuðla að þekkingarmiðlun og tæknilegri uppbyggingu innan teymisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla.
  • Sterkur tæknilegur bakgrunnur og reynsla af þróun, samþættingum, gagnalausnum eða lausnaarkitektúr.
  • Góð þekking og reynsla af Microsoft-skýjalausnum, sérstaklega Azure og Power Platform.
  • Reynsla af eða góð þekking á gagnamódelum, API-samþættingum og nútímalegum samþættingaraðferðum.
  • Góður skilningur á hugbúnaðarþróun, DevOps, öryggi og líftíma lausna.
  • Hæfni til að sjá heildarmyndina og umbreyta þörfum starfseminnar í raunhæfar tæknilegar lausnir.
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að leiða tæknilega umræðu og ákvarðanatöku.
  • Frumkvæði, forvitni og áhugi á nýrri tækni.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi og góð vinnuaðstaða.
  • Heilsu- og hamingjupakki sem meðal annars inniheldur samgöngu- og líkamsræktarstyrk og stuðning við sálfræðiþjónustu.
  • Gott mötuneyti með niðurgreiddur matur.
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið.
  • Farsímaáskrift og nettenging heima.
Það er kostur ef þú hefur
  • Reynslu af Microsoft Fabric, til dæmis Data Factory, Lakehouse, OneLake, Data Engineering eða Power BI.
  • Reynslu af Copilot Studio, Azure AI, Azure OpenAI eða þróun AI- og agent-lausna.
  • Reynslu af Azure Integration Services, API Management, Logic Apps eða sambærilegum samþættingarlausnum.
  • Reynslu af Dataverse, Dynamics 365 eða Business Central.
  • Reynslu af CI/CD, Azure DevOps, GitHub eða Infrastructure as Code.
  • Microsoft-vottanir á sviði Azure, Fabric, Power Platform, gagna eða AI.
  • Reynslu af tæknilegri forystu, til dæmis sem Tech Lead, Solution Architect eða Technical Product Owner.
  • Reynslu af stórum kerfisinnleiðingum eða alþjóðlegu starfsumhverfi.
Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Nýjungagirni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar