
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Meiraprófsbílstjóri í áætlanaakstri
Viltu vera á ferðinni með okkur?
Eimskip leitar að ábyrgum og þjónustuliprum meiraprófsbílstjóra með CE-réttindi til framtíðarstarfa. Starfið felst í áætlanaakstri milli Reykjavíkur og Akureyrar, og er starfsstöðin í Reykjavík. Vinnutími er frá kl. 14:00-22:00.
Við leitum að einstaklingi sem leggur metnað í starfið, er stundvís og áreiðanlegur, og veitir góða þjónustu.
Hjá Eimskip leggjum við áherslu á góðan aðbúnað og öryggi, og starfa bílstjórar okkar á nýlegum og vel viðhöldnum flota.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áætlanaakstur milli Reykjavíkur og Akureyrar
- Lestun og losun
- Góð og fagleg þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni tengd starfinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- CE-ökuréttindi og gild réttindi til aksturs í atvinnuskyni eru skilyrði
- Lyftararéttindi og ADR-réttindi eru kostur
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Þjónustulund og ábyrg vinnubrögð
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Líkamleg færni til að sinna starfinu
Fríðindi í starfi
- Nýlegur og vel útbúinn floti
- Val um aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem meðal annars rekur orlofshús víðs vegar um landið
- Fjölbreyttur stuðningur við heilsu og vellíðan, meðal annars samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniSamviskusemiSveigjanleikiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Lagerstarfsmaður og útkeyrsla
Skakkiturn ehf

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

skóla og ferðaþjónustu akstur í árborg
GTS ehf

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Bílstjóri - Lagerstarfsmaður
Fiskikóngurinn ehf.

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

Vörubílstjórar í snjómokstur
Heflun ehf

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri