
Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf. er öflugt verktakafyrirtæki með yfir 20 ára reynslu af fjölbreyttum framkvæmdum á sviði jarðvinnu, lagnavinnu, nýbygginga og yfirborðsfrágangs. Félagið var stofnað árið 2000 og hefur frá upphafi lagt áherslu á fagmennsku, skilvirkni og áreiðanleika.
Við störfum að mestu á útboðsmarkaði og höfum byggt upp traust langtímasamstarf við sveitarfélög, veitufyrirtæki og opinberar stofnanir. Verkefnin okkar tengjast uppbyggingu innviða samfélagsins – allt frá grunnvinnu við nýbyggingar og gerð leikskólalóða yfir í endurnýjun veitukerfa og lóðafrágang.
Stéttafélagið tekur einnig að sér smíði, endurnýjun og viðhald mannvirkja, svo sem skólabygginga og annarra opinberra fasteigna. Að auki þróum við eigin byggingarverkefni og höfum byggt og selt bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
Dæmigerð verkefni:
- Gerð gatna og göngu-/hjólreiðastíga
- Lagnavinna og endurnýjun veitukerfa
- Frágangur á leik- og grunnskólalóðum
- Lóðaframkvæmdir við íbúðar- og atvinnuhúsnæði
- Nýbyggingar, viðhald og þjónustuverkefni, s.s. snjómokstur
Félagið starfar eftir vottuðum gæðastöðlum (ISO 9001), umhverfisstjórnunarstöðlum (ISO 14001) og öryggiskerfum (ISO 45001). Þannig tryggjum við skipulagða framkvæmd, öruggt starfsumhverfi og ábyrg vinnubrögð á hverjum verkstað.
Stéttafélagið leggur áherslu á gott skipulag, skýr samskipti og árangursríkt samstarf við alla verkkaupa – og skilar verkefnum af öryggi, á réttum tíma og samkvæmt hæstu kröfum.

Tæknimaður óskast í fullt starf
Stéttafélagið ehf. óskar eftir tæknimanni til starfa.
Fyrirtækið starfar á sviði jarðvinnu, mannvirkjagerðar og lóðafrágangs.
Verkefnin eru fjölbreytt, s.s. GPS mælingar með Trimble GSM rover, magnútreikningar, aðstoð við tilboðsgerð og uppgjör, ofl..
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði er æskileg
Reynsla af GPS mælingum er kostur, en ekki skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
GPS mælingar og útsetningar
Tilboðsgerð og aðstoð við uppgjör
Tæknileg úrvinnsla gagna, og yfirferð teikninga
Auglýsing birt15. ágúst 2021
Umsóknarfrestur5. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Breiðhella 12, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Umsjónarmaður íþróttamannvirkja
Reykhólahreppur

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum
Samherji fiskeldi ehf.

Sölustjóri vöruflokka
Steypustöðin

Byggingafulltrúi
Bolungarvíkurkaupstaður

Verkefnastjóri skipulags- og byggingarmála
Hafnarfjarðarbær

Machine Designer
Embla Medical | Össur

Framkvæmdastjóri Rent A Party
Rent-A-Party

Tæknifólk í brunaviðvörunarkerfi
Securitas

Viltu umbreyta flóknum greiningum í hagnýtar ákvarðanir?
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Verkstjóri / verkefnastjóri í byggingarframkvæmdum
Landris Byggingar ehf.

Layout Engineer
JBT Marel

QA On The Floor Specialist
Alvotech hf