TÆKNILEGUR VÖRUSTJÓRI - STAFRÆNT ÍSLAND
Fjármála og efnahagsráðuneytið leitar að tæknilegum vörustjóra(e. technical product manager)til að leiða innleiðingu á straumnum (e. X-Road), öruggu gagnaflutningslagi hins opinbera, og þróun á vefþjónustum ríkisins í náinni samvinnu við fjölmargar stofnanir hins opinbera.
Stafrænt Ísland er starfseining innan fjármála-og efnahagsráðuneytisins. Hlutverk hennar er að vinna með ráðuneytum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og tryggja þannig skýr, einföld og hraðvirk samskipti. Stærsta verkefni Stafræns Íslands er þróun þjónustugáttarinnar Ísland.is.
Straumnum er ætlað að auðvelda samskipti á milli upplýsingakerfa á öruggan hátt og er byggður á opnum hugbúnaði sem fyrst var þróaður af Finnlandi og Eistlandi. Nánari upplýsingar á: https://island.is/straumurinn, https://www.niis.org/, https://x-road.global/
Þróunarverkefni á vegum Stafræns Íslands eru unnin með svokallaðri kvikri (e. agile) aðferðarfræði í hugbúnaðarþróun, unnið er í sprettum og stuðst er við notendamiðaða þjónustuhönnun.
Leitað er að drífandi sérfræðingi sem á auðvelt með að fá fólk með sér í lið og ná því besta fram í öðrum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða starfsreynsla á sviði tölvunarfræði, verkfræði, stafrænnar hönnunar eða tengdum greinum sem nýtist vel til úrlausnar ofagreindra verkefna.
Reynsla og þekking af vörustjórnun hugbúnaðarlausna og stjórnun þverfaglegra teyma í hugbúnaðarþróun.
Reynsla af innleiðingu umfangsmikilla tæknilausna og stafrænni umbreytingu.
Mjög góð þekking og skilningur á uppbyggingu upplýsingatæknikerfa, hugbúnaðarlausna og notkun vefþjónusta (e. API).
Greiningarhæfni, öguð og nákvæm vinnubrögð.
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vöruþróun og verkefnastýring hugbúnaðarlausna á vegum Ísland.is.
Innleiðing á straumnum á Íslandi, fræðsla og samskipti við stofnanir og alþjóðlega X-Road samfélagið.
Gerð vegvísa (e. roadmap) fyrir stafræn umbreytingarverkefni á sviði gagnasamskipta (s.s. vefþjónustur) í samstarfi við opinberar stofnanir.
Þróun og viðhald á gæðaviðmiðum fyrir vefþjónustur ríkisins (e. API design guide)
Greiningarvinna, notendarannsóknir og þarfagreiningar.
Forgangsröðun verkefna, mótun- og eftirfylgni verkáætlana.
Samskipti við hugbúnaðarhús, tæknilega birgja og stofnanir.