
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar fjölbreytt og spennandi starf sem felur í sér umsjón með faglegri stjórnsýslu hjá sveitarfélaginu. Í starfinu felst að stýra sviði sem ber ábyrgð á skipulags- og byggingarmálum og umhverfis- og framkvæmdamálum í vaxandi samfélagi. Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs er hluti af framkvæmdaráði sveitarfélagsins og heyrir beint undir sveitarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist i starfi, s.s. í lögfræði, verkfræði, skipulagsfræði og tæknifræði. Framhaldsmenntun er kostur
Þekking og farsæl reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Frumkvæði, skipulagshæfni og fagmennska
Hæfni til að stýra teymi og hvetja hóp starfsmanna
Farsæl stjórnunarreynsla kostur
Jákvæðni og virðing í mannlegum samskiptum
Góð almenn tölvukunnátta
Færni í framsetningu og miðlun upplýsinga bæði í ræðu og riti
Gott vald á íslensku og ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur og stjórn stjórnsýslusviðs en undir það heyra skipulags- og byggingardeild, umhverfis- og framkvæmdadeild og slökkvilið
Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda í sveitarfélaginu um faglega stjórnsýslu
Samskipti við íbúa, fyrirtæki, opinbera aðila og aðra sem eiga erindi við sveitarfélagið í þeim málaflokkum sem heyra undir stjórnsýslusvið
Umsjón með aðkomu sveitarfélagsins að fjölbreyttum uppbyggingarverkefnum
Kynning og ráðgjöf til sveitarstjórnar, byggðarráðs og sveitarstjóra
Önnur þau verkefni sem sveitarstjóri felur honum.
Auglýsing birt25. nóvember 2022
Umsóknarfrestur12. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfis- og framkvæmdasviði
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Teymisstjóri í Barna- og fjölskylduteymi
Reykjanesbær

Skipulagssvið Akureyrarbæjar: Verkefnastjóri skipulagsmála
Akureyri

Hönnun umferðarmannvirkja
EFLA hf

Product Designer / Engineer | Össur
Embla Medical | Össur

Alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálateymi
Reyktal þjónusta ehf.

Vatnsaflssérfræðingur
EFLA hf

Skipulags- og byggingarfulltrúi
Hafnarfjarðarbær

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum
Íslandssjóðir

Fjölbreytt verkefni á sviði löginnheimtu
Motus

Software Engineer
Treble Technologies