Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Svæðisstjóri Austursvæðis

Vegagerðin leitar að framsæknum og árangursdrifnum einstaklingi til að sinna starfi svæðisstjóra Austursvæðis. Starfið heyrir beint undir forstjóra og svæðisstjóri situr í framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Svæðisstjóri veitir faglega og stjórnunarlega forystu og ber ábyrgð á framkvæmd stefnu Vegagerðarinnar á svæðinu. Starfsstöð svæðisstjóra er á Reyðarfirði en getur verið með aðstöðu í Fellabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun á starfsemi og verkefnum
  • Áætlanagerð og fjármál
  • Yfirumsjón með kaupum á ráðgjöf og útboði verka á svæðisvísu
  • Framkvæmd á viðhaldi og þjónustu vegakerfis svæðisins
  • Samskipti við opinbera aðila og hagsmunaaðila
  • Stefnumótun og seta í framkvæmdastjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum
  • Reynsla af rekstri, fjármálum, áætlanagerð og verkefnastjórnun
  • Þekking og reynsla af innviðaframkvæmdum æskileg
  • Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðun
  • Frumkvæði, metnaður og árangursdrifni
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta    
Auglýsing birt19. mars 2024
Umsóknarfrestur4. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar