Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstörf í færanlegt búsetuteymi

Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sumarafleysingar í sértæku búsetuteymi fyrir fatlað fólk. Um er að ræða nýja nálgun í búsetuþjónustu þar sem einstaklingum gefst tækifæri til að búa sjálfstætt víðsvegar um Reykjavíkurborg. Áhersla er lögð á notendasamráð og unnið er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn, valdeflingu og skaðaminnkun.

Um fullt starf er að ræða og unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun.
Reynsla af starfi með einstaklingum á einhverfurófi æskileg.
Reynsla af starfi með einstaklingum með hegðunar- og/eða fíknivanda æskileg.
Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenskukunnátta B1 í samræmi við samevrópskan matskvarða.
Bílpróf.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samstarf við notendur og aðstandendur.
Framfylgir þjónustuáætlunum og verklagsreglum í samráði við teymisstjóra og forstöðumann.
Veitir einstaklingsmiðaðan stuðning við heimilishald og athafnir daglegs lífs, svo sem afþreyingu og tómstundir.
Hvetur og styður til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Fríðindi í starfi
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Auglýsing birt18. febrúar 2021
Umsóknarfrestur4. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar