

Sumarstörf - Apótekarinn Hveragerði
Apótekarinn Hveragerði leitar að þjónustulunduðum starfsmönnum til þess að sinna þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini fyrirtækisins. Um sumarstarf er að ræða.
Vinnutími er annarsvegnar alla virka daga kl 10-18 og hins vegnar alla virka daga kl 13-18.
Starfssvið:
-Ráðgjöf til viðskiptavina
-Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi í apóteki er kostur
- Lyfjatæknimentun er mikill kostur
- Söluhæfileikar
- Mikil þjónustulund og jákvæðni
- Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
- Lágmarksaldur er 20 ára
Gert er ráð fyrir að starfsmenn sem starfa í sumarafleysingum séu að leysa af starfsmenn í sumarleyfum, því er mikilvægt að viðkomandi sé ekki með fyrirhugað frí á tímabilinu 15 júní - 15 ágúst.
Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.
Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.
Íslenska










