
Lyfjaval
Lyfjaval rekur sjö apótek, fimm á höfuðborgarsvæðinu, eitt á Selfossi og annað á Reykjanesinu. Okkar sérstaða er að vinna með bílalúgur sem veita okkur aukið svigrúm til nærgætni. Hjá okkur starfar öflugur og samhentur hópur sem hefur heilsu og hamingju að leiðarljósi.
Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi

Næturvaktir í Lyfjavali Hæðasmára
Lyfjaval leitar að einstaklingi með ríka þjónustulund á næturvaktir í lyfjaverslun okkar við Hæðasmára. Um afgreiðslu- og þjónustustarf er að ræða með vinnutíma frá kl. 21-9 aðra hverja viku, frá sunnudagskvöldi til föstudagsmorguns.
Eiginleikar sem við kunnum vel að meta eru:
- Reynsla af næturvinnu er kostur
- Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf.
- Áhugi á heilsu og vellíðan
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Björn Hrannar Brynjarsson, [email protected].
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Ráðgjöf um notkun lausasölulyfja
- Ráðgjöf um val á öðrum vörum
- Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
- Áfyllingar í verslun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af næturvinnu er kostur
- Stúdentspróf er vel metið
- Íslenskukunnátta er æskileg
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
Afsláttur af lausasölulyfjum og öðrum vörum
Auglýsing birt1. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hæðasmári 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Mandarínmælandi sölufulltrúi / Mandarin Speaking Sales Representative
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Afgreiðsla á Keflavíkurflugvelli
Icelandia

Karlkyns starfsmaður í sundlaug Eskifjarðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Pizzan óskar eftir starfsfólki
Pizzan

Ertu hress og til í tuskið?
Serrano

Part Time Sales Assistant
Sports Direct Lindum

Umsjón netverslunar og vörulagers
Wodbúð

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Starfsfólk í verslun - Helgarstarf - Selfoss
ILVA ehf