Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sumarstörf á HSU - Móttökuritari Höfn í Hornafirði

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða móttökuritara sem er jákvæður, sjálfstæður og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni með bros á vör. Um er að ræða 100% sumarstarf á heilsugæsluna á Höfn í Hornafirði.

Á Heilsugæslunni á Höfn í Hornafirði starfar samhentur hópur sem hefur velferð og þarfir þjónustþega að leiðarljósi.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga

  • Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg

  • Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Viðkomandi þarf að vera þjónustulundaður og hafa tölvukunnáttu

  • Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og geta átt góð tjáskipti á ensku.

Auglýsing birt9. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Víkurbraut 1, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar