
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Klettur óskar eftir að ráða þjónustulipran og ábyrgðarfullan starfsmann í verkstæðismóttöku fyrirtækisins. Í starfinu felst móttaka viðskiptavina, skráning verkbeiðna afhending bíla og tækja eftir þjónustu og útskriftir reikninga fyrir fyrirtækið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og afhending bíla og tækja
- Skráning verkbeiðna
- Frágangur verkbeiðna fyrir reikning
- Upplýsingagjöf um stöðu verka
- Ýmis önnur störf í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla á að vinna sambærilegt starf er kostur
- Góð þekking á flutningabílum og vinnuvélum
- Góð framkoma, rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvufærni og tungumálakunnátta
- Metnaður og frumkvæði við úrlausn mála
- Dugnaður og jákvæðni
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður.
- Afsláttur af vörum félagsins.
- Íþróttastyrkur.
- Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðhald lyftara og búnaðar í vöruhúsi
Bera hf.

Bifvélavirki / handlaginn einstaklingur
Katlatrack ehf

Verkstæði
EAK ehf.

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Bílrúðuísetningar
Bílrúðan ehf

Bifvélavirki, vélvirki
Aflvélar ehf.

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Vélvirki, Stálsmiður, Járniðnaðar maður.
Cyltech tjakkalausnir

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn