
Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.

Þjónustufulltrúi - Tæknideild
Að veita viðskiptavinum Fastus framúrskarandi þjónustu og afgreiðslu til að tryggja jákvæða upplifun. Þjónustufulltrúi sinnir upplýsingagjöf og þjónustu við viðskiptavini, almennri símsvörun, skráningu beiðna og móttöku tækja. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og frumkvæði í starfi.
Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða tímabundið 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.
Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og afgreiðsla viðskiptavina á verkstæði
- Símsvörun og þjónusta við viðskiptavini í gegnum síma
- Taka á móti verkbeiðnum
- Skrásetja verkbeiðnir
- Yfirsýn yfir verkbeiðnum
- Bókun á tilfallandi reikningum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti
- Gott frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna undir álagi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptafærni á íslensku og ensku
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skrifstofustjóri
Stekkjaskóli

Sumarafleysing - Móttökuritari
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Innkaupafulltrúi
Dynjandi ehf

Gjaldkeri í reikningshaldi
Kópavogsbær

Þjónustufulltrúi
Fura ehf.

Leitum að öflugum bókara til liðs við okkur
Six Rivers Iceland ehf.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin ehf

Sölufulltrúi Akureyri
Tengir hf.

Viðgerðarmaður á vélaverkstæði
Vélfang ehf

Framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands
Skautasamband Íslands

Þjónustufulltrúi - sumarstarf
N1

Sala, bókanir og umsýsla hópa - Ferðaþjónusta
GoNorth