
Hertz Bílaleiga
Hjá Bílaleigu Flugleiða Hertz á Íslandi starfa um 140 manns um allt land. Stærstu starfsstöðvarnar eru í Keflavík, Hafnarfirði og Reykjavík, einnig erum við með útleigustöðvar á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og Skagaströnd. Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á ýmiskonar þjónustu tengdri leigu á bílum, allt hvað hentar hverjum og einum hvort sem vantar bíla til lengri eða skemmri tíma eða þá til kaups á bílasölunni okkar í Selhellu í Hafnarfirði.
Þjónustufulltrúi Hertz á Ísafirði - Sumarstarf
Hertz á Íslandi leitar að þjónustufulltrúa á starfstöð okkar á Ísafirði í 50% - 100%. Vinnutíminn getur verið breytilegur milli daga og getur jafnt falist í þrifum á bílum og afgreiðslu til viðskiptavina.
Í starfinu felst meðal annars afgreiðsla, þjónusta og þrif við útleigu og skil á bílaleigubílum ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum.
Vinnutíminn er á dagvinnutíma.
Hertz hefur að geyma fjölbreyttan hóp starfsmanna og eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með útleigu og móttöku bílaleigubíla
- Skráning leigusamninga
- Þrif á bílum fyrir útleigur
- Tjónaskoðun við skil á bílum
- Samskipti við viðskiptavini gegnum síma og tölvupóst
- Ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Geta unnið undir álagi
- Sjálfstæð, öguð og fagleg vinnubrögð
- Bílpróf
- Tala bæði íslensku og ensku
- Góð mannleg samskipti
Fríðindi í starfi
Niðurgreiðsla á völdum námskeiðum
Íþróttastyrkur
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ísafjarðarflugvöllur 139003, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Travel Consultant & Guide for Chinese-speaking Market
Forest Cat Travel

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Móttökustjóri | Reception Manager
Íslandshótel

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel

FERÐASKRIFSTOFA Ferðaráðgjafi
Eskimos Iceland

Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Sérfræðingur í Global Labeling
Kerecis