Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í VoR teymi Reykjavíkurborgar

Vesturmiðstöð leitar að starfsmanni sumarafleysingu í Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR-teymið innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir). Starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er mestmegnis á dagvöktum og aðra hverja helgi.

Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR) aðstoðar heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VoR teymið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning á vettvangi og vinnur að forvörnum með því að sinna gestum sem koma í neyðarskýli í samstarfi við forstöðumenn neyðarskýla og ráðgjafa á öllum miðstöðvum borgarinnar. VoR teymið veitir ákveðnum hópi fólks í sjálfstæðri búsetu stuðning og ráðgjöf í anda hugmyndafræðinnar um Húsnæði fyrst (HF). Auk þess sinnir VoR teymið vettvangsstarfi og tilfallandi verkefnum sem upp koma varðandi markhóp þjónustunnar. Tekið mið af skaðaminnkandi nálgun til að draga úr skaðlegum áhrifum jaðarsetningar og draga úr skaðsemi og áhættu sem geta fylgt vímuefnanotkun. Jafnframt er unnið eftir batahugmyndafræði, áfallamiðaðri nálgun og notaðar aðferðir áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita jaðarsettum hópi fólks stuðning í sjálfstæðri búsetu og ráðgjöf undir formerkjum Húsnæði fyrst hugmyndafræðinnar.
  • Virkt notendasamráð – notandi sérfræðingurinn.
  • Veita íbúum/notendum heildstæða þjónustu í nærumhverfi sínu samkvæmt einstaklingsáætlun.
  • Stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku og virkni.
  • Stuðningur við samskipti við stofnanir.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæri fyrir íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með jaðarsettum einstaklingum með fjölþættan vanda.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun, áfallamiðaðri nálgun og batahugmyndafræði.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og frumkvæði.Sveigjanleiki, þolinmæði og umburðarlyndi.
  • Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt25. mars 2024
Umsóknarfrestur14. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugavegur 77, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar