

Sumarstarf í Vestmannaeyjum - Starfsmaður í býtibúr
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða öflugan og ábyrgan starfsmann í sumarafleysingu í býtibúr sjúkradeildar HSU í Vestmannaeyjum.
Við stórbrotna náttúru og lifandi sögu í hjarta Vestmannaeyja er einstakt að starfa og búa í öflugu og samhentu samfélagi. Eyjarnar eru aðlaðandi staður fyrir fjölskyldufólk og þá sem leita jafnvægis milli vinnu og einkalífs.
Í Vestmanneyjum starfa um 100 manns. Þar er sjúkrahús sem sinnir víðtækri heilbrigðisþjónustu ásamt hjúkrunarheimili.
-
Umsjón með býtibúri og daglegum rekstri þess
-
Aðstoð við matmálstíma á deild
-
Sækja mat í eldhús HSU og bera fram til skjólstæðinga
-
Frágangur og þrif í kjölfar matmálstíma
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
-
Áhugi á að vinna með fólki og jákvætt viðhorf til þjónustustarfa
-
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
-
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
-
Sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Góð íslenskukunnátta
Íslenska










