NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Afleysingar-aðstoðarkona í hlutastarf / Temporary Part-time Personal assistant

[Speaking Icelandic is not required if applicant speaks English well, see information in English below]

Ég er 40 ára gömul fötluð kona í Kópavogi sem þarf aðstoð við flestar athafnir daglegs lífs og er því með NPA (notendastýrða persónulega aðstoð).

Starfið felst í að hjálpa mér með allt í mínu daglega lífi, þar á meðal að halda heimilinu hreinu. Ég hef mikinn áhuga á réttindabaráttu, stjórnmálum, tölvuleikjum og plöntum. Starfið er kjörið fyrir þær sem kjósa rólegt starfsumhverfi. Ég bý með eiginmanni og litlum hundi.

Auglýsi eftir aðstoðarkonu í tímabundið hlutastarf (í sumar) til að leysa af starfsmenn í sumarleyfi. Um er að ræða 12 tíma laugardagsvaktir í 6 vikur (27.júní - 1.ágúst) ásamt ýmsum fleiri vöktum sem vantar á út sumarið. Möguleiki á að halda áfram í back-up teymi eftir sumarið ef áhugi er á og vera í forgangi ef fastar stöður losna seinna meir.


Möguleiki væri að skipta þessu upp í tvö hlutastörf ef vaktirnar henta ekki allar einum aðila.

Vegna eðlis starfsins tek ég aðeins til greina að ráða konur (cis eða trans). Umsækjendur þurfa að vera búsettar á höfuðborgarsvæðinu og vera með bílpróf. Nauðsynlegt er að vera vel við hunda því litli hundurinn minn er oftast með mér og hluti af starfinu er að sinna honum.

Sveigjanleiki, tillitssemi og góð samskiptahæfni er líka nauðsyn.

Það hvort okkar samskipti fara fram á íslensku eða ensku skiptir mig ekki máli en ég geri kröfu um að aðstoðarfólk sé vel fært í ensku til að geta átt samskipti við hinar aðstoðarkonurnar í teyminu ef þess gerist þörf.

Upplýsingar um kjarasamninga og annað um NPA má finna á npa.is

Upplýsingar um laun eru hér: https://www.npa.is/launakjor-adstodarfolks

Umsóknir óskast sem fyrst.
Ég er mun líklegri til að fá fólk í viðtal sem sendir persónulega umsókn, þetta er persónulegt starf. Ég mun ráða í stöðuna um leið og ég finn réttan aðila í stöðuna en ekki bíða þar til umsóknarfrestur rennur út.

******

English

NPA/personal assistance is about helping me (a 40 year old disabled woman) with living my life on my own terms. This includes helping me with everything I need to do, with taking care of my dog and helping me keep my home clean and organized. I live in Kópavogur, I'm married and have a small dog. My main hobbies are video games and my plants.

This job is ideal for dog lovers and people who prefer a calm environment.

Other requirements:

· Being a woman (cis or trans)

· Living in Höfuðborgarsvæðið (capital region)

· Having a driver's licence

· Not be anti-vax

· Being able to communicate well in English

· Liking dogs (because my dog is usually with me)

· Being flexible and considerate

I'm looking to hire a woman into my team of NPA assistants (Independent living/Personal Assistance). It's temporary part-time job to cover for staff that are on vacation. Most of the shifts are 10:00-22:00 Saturday shifts (June 27th to August 1st) and various other shifts that my team is not able to cover (I'll show you a list at the interview).

It's possible to divide this into two part time jobs if I can't find anyone who can do all those shifts.

It might be possible to stay on afterwards as a member of the backup team and be first in line if a position opens up in the future.

I strongly suggest sending a cover letter that tells me something about your personality and interests, I usually only interview people that give me a reason to think we would get along.

The union contracts and further information about NPA can be found on npa.is (in Icelandic).

Salary information: https://www.npa.is/launakjor-adstodarfolks (in Icelandic)

Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar