

Sumarstarf í mötuneyti / Summer job in canteen
Airport Associates leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að starfa í mötuneyti fyrirtækisins í sumar.
Um er að ræða tímabundið starf frá júní til lok september, með möguleika á áframhaldandi starfi.
Vinnutími er í dagvinnu frá kl. 08:00–16:00 og aðra hverja helgi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Aðstoð við matreiðslu
-
Umsjón með salatbar og ábyrgð á hreinlæti
-
Uppvask og frágangur
-
Þrif og tiltekt í eldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Áhugi og/eða reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Góð hæfni í samvinnu og mannlegum samskiptum
-
Jákvæðni og sveigjanleiki
-
Góð kunnátta í íslensku og ensku
-
Hreint sakavottorð
Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar við Keflavíkurflugvöll. Starfsemi félagsins nær til alhliða þjónustu við íslensk og erlend flugfélög, þar á meðal hleðslu og affermingu farms, innritun farþega, fraktafgreiðslu og ræstingu.
Nánari upplýsingar veitir:
Íris Ósk Guðlaugsdóttir – [email protected]













