Securitas
Securitas
Securitas

Sumarstarf í farandgæslu

Vilt þú vera með okkur í sumar?

Við hjá Securitas leitum að liðsauka í okkar frábæra gæsluteymi til að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini Securitas, viðbragð við útköllum vegna boða frá öryggiskerfum, ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.

Ef þú...

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt.
  • Býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni.

... þá erum við að leita af þér!

Í boði er sumarstarf með möguleika á áframhaldandi starfi. Unnið er á vaktarkerfinu 5-5-4, ýmist dag- eða næturvöktum. Starfið hentar öllum kynjum sem náð hafa 20 ára aldri með góða íslenskukunnáttu, hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Nánar upplýsingar um starfið veitir Sigurður Hlíðar Rúnarsson deildarstjóri farandgæslu, í síma 580-7000.

Auglýsing birt10. febrúar 2025
Umsóknarfrestur15. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar