Land og skógur
Land og skógur

Sumarstarf hjá Landi og skógi á Norðurlandi eystra

Land og skógur óskar eftir að ráða öflugt sumarstarfsfólk í afleysingar í starf héraðsfulltrúa á Norðurlandi eystra 2026. Aðal aðsetur héraðsfulltrúa á Norðurlandi eystra er í Ásbyrgi en aðsetur sumarstarfsfólks getur verið á öðrum starfsstöðvum Lands og skógar á svæðinu eftir samkomulagi.

Land og skógur er þekkingar- og þjónustustofnun sem vinnur að uppbygginu og vernd gróður- og jarðvegsauðlinda á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki við að bæta ástand þeirra og stuðla að sjálfbærri landnýtingu. Stofnunin sinnir verkefnum á sviði landgræðslu, endurheimtar vistkerfa, nýskógræktar, umhirðu og friðunar skóga með það að markmiði að efla umhverfislegan, samfélagslegan og hagrænan ávinning sjálfbærrar landnýtingar. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018 og lögum um skóga og skógrækt nr. 33/2019.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og eftirlit með verkefnum í Bændur græða landið, Landbótasjóði Lands og skógar og öðrum verkefnum sem snúa að endurheimt og sjálfbærri landnýtingu
  • Skráning landgræðsluaðgerða og eftirlit með árangri þeirra
  • Fræðsla og ráðgjöf til hagaðila, svo sem bænda og annarra landnotenda
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við samstarfsfólk og næsta yfirmann, svo sem gróðursetning, girðingavinna, mælingar á kolefni og annað sem tengist landgræðslusvæðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti
  • Gild ökuréttindi á beinskiptan bíl er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Þekking og reynsla af landgræðslustarfi er kostur
  • Þekking og reynsla af landbúnaði er kostur
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gunnarsholt 164495, 851 Hella
Ásbyrgi, 671 Kópaskeri
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar