Waldorfskólinn í Lækjarbotnum
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum

Skólaritari óskast til starfa

Waldorfskólinn í Lækjarbotnum óskar eftir að ráða ritara í 40-60% stöðu.

Starfið er fjölbreytt, í því felst m.a. samskipti við foreldri og kennara, utanumhald um ýmis verkefni, innkaup, símsvörun og umsjón með vef skólans.

Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, ásamt því að búa að góðum skipulagshæfileikum og ríkri þjónustulund.

Í Lækjarbotnum er boðið upp á samfellt skólastig 3-16 ára barna og byggir starfið á uppeldisfræði Rudolfs Steiner. Unnið er samkvæmt flatri stjórnun þar sem starfsmannaráð ber ábyrgð á rekstri og innra starfi skólanna.

Í skólanum og leikskólanum eru um 100 börn við leik og störf.

Skólinn er staðsettur í Lækjarbotnum í fallegum dal með ævintýralegu umhverfi ca. 9 km fyrir austan Norðlingaholt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk skólaritara er fjölbreytt og krefst bæði skipulags og sveigjanleika. Helstu verkefni fela m.a. í sér:

Móttöku og upplýsingagjöf. T.d. að svara og beina símtölum áfram, veita faglega upplýsingagjöf og taka vel á móti börnum, foreldrum og starfsfólki.

Nákvæm skráning og upplýsingavinnsla í upplýsingakerfinu Námfús, sem gegnir mikilvægu hlutverki í samskiptum og upplýsingamiðlun skólans.

Almenn skrifstofustörf, aðstoð við skólastjórnendur og kennara, umsjón með pósti og önnur fjölbreytt verkefni sem koma upp í dagsins önn. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun sem nýtist í starfi (t.d. stúdentspróf, próf í skrifstofugreinum eða sambærlega menntun). 

Mjög góð almenn tölvukunnátta er skilyrði. Reynsla af upplýsingakerfinu Námfús er kostur.

Framúrskarandi kunnátta í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli, ásamt góðri enskukunnáttu.

Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og lipurð gagnvart börnum jafnt sem fullorðnum.

Jákvætt viðhorf, frumkvæði og hæfni til að halda góðu skipulagi á álagstímum.

Fríðindi í starfi
  • Starfsmenn geta tekið skólarútu skólans sér að kostnaðarlausu til og frá vinnu
  • Starfsmenn skólans njóta gjaldfrjálsra máltíða á vinnutíma
Auglýsing birt4. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lækjarbotnaland 53, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar