
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Sumarstarf á heimili fyrir fatlaða í Hlíðunum
Sambýlið Stigahlíð 71 óskar eftir að ráða hressa, hrausta, ábyrgðarfulla og vinnuglaða stuðningsfulltrúa í allt að 90% starf við sumarafleysingar. Unnið er á fjölbreyttum vöktum og miðast ráðning við 15. maí eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn þjónusta og aðstoð við heimilisstörf eins og þrif og matseld.
- Veita íbúum félagslegan stuðning innan heimilis sem utan.
- Hvetja og styðja íbúa til sjálfhjálpar og félagslegrar virkni.
- Stuðningur við allar athafnir daglegs lífs
- Sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Önnur þau störf sem geta fallið innan starfslýsingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Reynsla af störfum með fötluðum æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta, B2-C2. https://europass.europa.eu/system/files/2020-05/CEFR%20self-assessment%20grid%20IS.pdf
Auglýsing birt22. apríl 2025
Umsóknarfrestur6. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Vaktavinna í neyðarskýli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Virkniþjálfi í félagsstarfi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri á íbúðakjarna Barðastöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður í þjónustukjarna við Sléttuveg- sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi á áfangaheimili í sumar
Samhjálp

Persónulegur aðstoðarmaður - Sumarstarf
NPA aðstoðarmaður

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf

Starfsmaður óskast á Miðskóga, heimili fatlaðs fólks í Garða
Garðabær

Sumarstarf á heimilinu Birkimörk í Hveragerði
Hveragerðisbær

Vaktavinna í neyðarskýli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Vakstjóri á Austurlandi
Securitas

Spennandi sumarstarf í búsetuþjónustu
Borgarbyggð

Aðstoðarfólk óskast í Garðabæ
NPA miðstöðin

Skólaliðar
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum

Meindýraeyðir óskast
Varnir og Eftirlit

Starfsmaður sértækrar heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær