

Sumarstarf
Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum vantar starfsmann á vaktir í verksmiðju í sumarafleysingar. Einnig vantar sumarstarfsmenn í löndun, bæði vélamenn og verkamenn.
Vaktmanna starfið felur í sér að sjá um innmötun í framleiðslukerfi verksmiðjunnar. Þar sem unnið er á vinnuvél, í eftirliti og þrifum.
Í löndun er bæði krani og dráttarvél með vagn, og einni starfsmenn sem vinna á bryggju og í lest skipsins.
Verksmiðjan gengur allan sólahringinn og framleiðir úrvals mjög í þangi og þara sem er selt út um allan heim.
Einnig þarf starfsmaður að hafa góða öryggisvitund og vera viljugur að taka þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.
Unnar eru sex dagvaktir, þrjár frívaktir, sex næturvaktir og þrjár frívaktir. Laun greidd eftir kjarasamningi Þörungaverksmiðjunnar við Verkalýðsfélag Vestfirðinga.
Löndunarstarfið er unnið í dagvinnu.











