

Sumarafleysingar í leikskólanum Garðaseli
Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar. Um er að ræða starf frá maí til ágúst 2025. Leikskólinn er lokaður í fjórar vikur frá 7. júlí til og með 4. ágúst. Vinnutími er eftir nánara samkomulagi.
Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að áhugasömu fólki sem tilbúið er að vinna með stórum og öflugum starfsmannahópi af áhuga og jákvæðni. Í leikskólanum eru um 160 börn á sjö deildum.
Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.
Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leiðbeinenda eða leikskólakennara. Starfið er unnið í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
- Uppeldismenntun kostur
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára og eldri
- Hreint sakavottorð












