
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) veitir íbúum umdæmisins og öðrum, almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma.
Lögð er áhersla á virðingu, traust og fagmennsku. Velferð skjólstæðinga skal höfð að leiðarljósi. Stuðlað er að virkri sí- og endurmenntun starfsfólks.
HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir.
Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum.
Heilsugæslusvið
Læknisþjónusta, hjúkrun, geðheilbrigðisþjónusta, heilsuvernd, forvarnir, slysa- og bráðaþjónusta og annast sjúkraflutninga.
Hjúkrunarsvið
starfrækir hjúkrunarrými á starfsvæðinu þar sem slík þjónusta er ekki rekin af öðrum.
Sjúkrasvið
starfrækir umdæmissjúkrahús, almenn sjúkrarými og endurhæfingu.
Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir
Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.

Sumarafleysing 2026. Starfsmaður í eldhúsi HVE á Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi óskar eftir að ráða matráð eða starfsmann sem getur eldað í sumarafleysingu í eldhúsi HVE Akranesi
Um er að ræða dagvinnu og helgarvinnu. Starfshlutfall er 80-100%, eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Maðtreiðsla og aðstoð í eldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum við matreiðslu er skilyrði
- Jákvæðni, skipulagshæfni, góð samskiptahæfni, snyrtimennska og stundvísi.
- Þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Íslenskukunnátta æskileg
Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Merkigerði 9, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Eldhússtörf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (8)

Matráður óskast
Kvíslarskóli

Join the Summer Season Team at Hótel Húsafell 2026
Hótel Húsafell

Starfsmaður í mötuneyti / Canteen employee
Airport Associates

Chef – Full-Time Position (Hvolsvöllur)
Lava Veitingar ehf

Sumarafleysing - Matráður í eldhúsi í Stykkishólmi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Matreiðslumaður hjá Lux veitingum
Lux veitingar

Sushi matreiðslumaður/ Sushi Chef
Brasa

Matreiðslumaður óskast -spennandi starf á Snæfellsnesi
Arnarstapicenter