

Aðstoðarmatráður
Leirvogstunguskóli leitar að aðstoðarmatráð.
Um 70 % starfshlutfall er að ræða.
Leirvogstunguskóli er stækkandi leikskóli með 112 nemendur. Í skólanum er unnið framsækið og öflugt skólastarf þar sem kærleikurinn og gleðin er höfð að leiðarljósi. Unnið er markvisst eftir kennsluaðferðinni Leikur að læra sem gengur út á að kenna börnum hljóð, stafi, stærðfræði, form og liti í gegnum söngva, leiki og hreyfingu.
Aðstoðarmatráður sér meðal annars um að undirbúa og framreiða mat fyrir nemendur og starfsmenn skólans. Hann tekur þátt í frágangi sem og almennum þrifum í eldhúsi skólans. Viðkomandi þarf að auki að geta leyst matráð af eftir þörfum.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
- Undirbúningur á mat fyrir nemendur og starfsmenn
- Tiltekt og frágangur í eldhúsi
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góður samstarfsvilji og jákvæðni
- Mikil þjónustulund
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska










