

Bílstjóri / Aðstoð í eldhúsi
Við leitum að ábyrgum og þjónustuliprum sendli.
Starfið er fjölbreytt og felst annars vegar í útkeyrslu matvæla til viðskiptavina, móttöku og skilum á kössum, vörusókn til birgja og frágangi. Hins vegar felur starfið í sér fasta viðveru í eldhúsi og virka þátttöku í daglegum verkefnum innan þess.
Viðkomandi þarf því að vera stundvís, úrræðagóður og tilbúinn að taka þátt bæði í akstri og daglegu flæði eldhússins.
ATH eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum Alfreð.
Útkeyrsla matvæla til fyrirtækja og viðskiptavina
Söfnun og skil á kössum og umbúðum frá viðskiptavinum
Sækja vörur og hráefni til birgja þegar við á
Umsjón með réttri meðhöndlun matvæla í flutningi
Gæta að hreinlæti, reglu og öryggi við akstur og afhendingu
Einföld skráning á sendingum og afhendingum (unnið er eftir birgðaskráningu í eSmiley)
Aðstoð í eldhúsi
Þátttaka í daglegum verkefnum eldhússins, svo sem frágangi, tiltekt og öðrum almennum eldhússtörfum
Gilt ökuskírteini (B)
Reynsla af akstri og/eða sendilstörfum er kostur
Góð tímastjórnun og áreiðanleiki
Geta til að vinna sjálfstætt
Grunnþekking á meðhöndlun matvæla er kostur
Enska
Íslenska










