Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Bílstjóri á bílaflutningabíl – Keflavík/Ásbrú

Höldur - Bílaleiga Akureyrar leitar að bílstjóra með meirapróf (C réttindi) til starfa við akstur bílaflutningabíls. Starfið felst í flutningi á bílaleigubílum í eigu fyrirtækisins, aðallega milli starfsstöðva á suðvesturhorninu, en eftir aðstæðum einnig út á land. Starfsstöð bílstjóra verður í Ásbrú. Um er að ræða nýtt starf sem starfsmaður tekur þátt í að móta.

Viðmiðunarvinnutími er 9-17 virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Flutningur á bílaleigubílum
  • Ýmis verkefni í samstarfi við starfsfólk flotasviðs
  • Fjölbreytt tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf / C réttindi 
  • Ábyrg og örugg aksturshegðun
  • Sjálfstæði vinnubrögð 
  • Góð samskiptahæfni 
  • Gott vald á ensku 
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði 
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974, en upphaf Bílaleigu Akureyrar má rekja aftur til ársins 1966. Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið einn umsvifamesti kaupandi nýrra bíla á Íslandi undanfarin ár og hefur verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.

Fjöldi útleigustöðva gerir viðskiptavinum okkar hægt um vik að leigja bíl á einum stað og skila á öðrum. Góð þjónusta og sveigjanleiki er okkar aðalsmerki. Bílaleiga Akureyrar er umboðsaðili Europcar bílaleigukeðjunnar á Íslandi.

Á Akureyri rekur fyrirtækið alhliða bílaþjónustu. Má þar nefna dekkjaverkstæði ásamt bílaþvottastöð, bílasölu með nýja og notaða bíla, ásamt glæsilegu bíla- og tjónaviðgerðaverkstæði. Höldur er sölu- og þjónustuaðili á Norðurlandi fyrir bílaumboðin Heklu og Öskju.

Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Klettatröð 6, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar