

Starfsmaður í kjötborð & eldhús
Melabúðin auglýsir eftir fjölhæfum starfsmanni í fullt starf.
Við leitum að ábyrgum og glaðlyndum einstaklingi í sælkeraverslun sem leggur metnað sinn í góða þjónustu og er með eitt breiðasta vöruúrval landsins í matvöru.
Við kvetjum öll kyn til þess að sækja um! Við í Melabúðinni erum þétt og náið teymi og viljum fá einstakling sem passar í hópinn.
Almenn vinnutími er frá kl.08-17:00 alla virka daga, en starfsmenn rótera helgardaga og hátíðardaga.
· Eldhúsvinna m.a. að elda kjúkling
· Afgreiðsla í kjöt- og fiskborði, ásamt tilfallandi eldhússtörfum
· Uppvask
· Móttaka og frágangur á vörum
· Almenn verslunarstörf
· Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Metnaður í sölumennsku og upplifun viðskiptavina
· Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
· Reynsla af þjónustustörfum kostur
· Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
· Reynsla af matreiðslu er kostur
· 18 ára aldurstakmark
Enska
Íslenska










