Menntaskólinn við Sund
Menntaskólinn við Sund
Menntaskólinn við Sund

Stuðningsfulltrúi

Laus er til umsóknar 50-100% staða stuðningsfulltrúa á nýstofnaðri starfsbraut við Menntaskólann við Sund. Um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2022-2023 með möguleika á framtíðarráðningu. Starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Sameyki stéttarfélags í almannaþjónustu.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Náms- og starfsferilsskrá
  • Afrit af prófskírteinum
  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við
  • Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

Í ljósi jafnréttisáætlunar skólans eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafi störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla og áhugi á að starfa með ungmennum
Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð kunnátta í íslensku og notkun upplýsingatækni
Stundvísi og samviskusemi
Stuðningsfulltrúanám, félagsliðanám eða annað sambærilegt nám æskilegt
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningsfulltrúar eru aðstoðarmenn kennara eða þroskaþjálfa. Hlutverk þeirra er að aðstoða nemendur starfsbrautar við að ná markmiðum sínum í því námsumhverfi sem þeim er skapað innan skólans. Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur starfsbrautar við athafnir daglegs lífs innan skólans og stuðlar að almennri velferð og vellíðan nemenda í skólanum.
Auglýsing birt16. september 2022
Umsóknarfrestur26. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gnoðarvogur 43, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar