

Stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúi vinnur með börnum á yngsta stigi sem þurfa aukinn stuðning vegna hegðunar-, tilfinninga- eða félagslegra erfiðleika.
Starfið felst meðal annars í að styðja nemendur í daglegu skólastarfi, námi, samskiptum og félagsfærni, aðstoða við að skapa fyrirsjáanlegt og öruggt skólaumhverfi og vinna með kennurum og öðru fagfólki að einstaklingsmiðaðri nálgun fyrir hvern nemanda.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk geti myndað góð tengsl við börn, haldið ró sinni við krefjandi aðstæður og unnið af hlýju og samkennd.
Starfið er fjölbreytt og getur meðal annars falið í sér aðstoð í kennslustundum, leik og útiveru, einstaklingsstuðning, félagsfærniþjálfun og aðstoð við nemendur við að takast á við erfiðar aðstæður og komast aftur í jafnvægi.
Suðurbæjarskóli er lítið og sérhæft skólaúrræði fyrir börn á yngsta stigi sem þurfa tímabundið meiri stuðning en hægt er að veita í hefðbundnu skólaumhverfi. Við vinnum með litla nemendahópa og leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun, góð tengsl, skýra umgjörð og náið samstarf starfsfólks.
Á vinnustaðnum starfar þverfaglegt teymi sem vinnur saman að því að skapa öruggt, fyrirsjáanlegt og uppbyggilegt umhverfi fyrir nemendur.
- Stuðningur við nemendur í daglegu skólastarfi og námi
- Aðstoð við samskipti, félagsfærni og tilfinningastjórnun
- Þátttaka í kennslustundum, útiveru, leik og öðrum verkefnum skóladagsins
- Að stuðla að öruggu, fyrirsjáanlegu og jákvæðu skólaumhverfi
- Að vinna eftir einstaklingsbundnum markmiðum og stuðningsáætlunum nemenda
- Náið samstarf við kennara og annað starfsfólk skólans
- Að bregðast rólega og faglega við krefjandi aðstæðum
- Þátttaka í teymisvinnu og daglegu skipulagi starfsins
- Reynsla af starfi með börnum eða ungmennum æskileg
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur, t.d. á sviði uppeldis-, félags- eða menntavísinda
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Hæfni til að mynda góð og traust tengsl við börn
- Þolinmæði, festu og ró í krefjandi aðstæðum
- Sveigjanleiki, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Ábyrgð, stundvísi og fagleg vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð nauðsynlegt
Íslenska









