

Stekkjaskóli - íþróttakennari
Auglýst er eftir íþróttakennara í afleysingakennslu vegna fæðingarorlofs. Um er að ræða 100% starfshlutfall frá og með 18. febrúar- 2. júní 2026. Leitað er eftir áhugasömum íþróttakennara sem hefur brennandi áhuga á að vinna með börnum.
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Í skólanum eru um 360 nemendur í 1. - 8. bekk. Fullsetinn verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Kennsla í íþróttum og sundi
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklinga
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
- Leyfisbréf grunnskólakennara/ íþróttakennara
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Íslenska










