

Starfsmaður í Viðhald ganga/Maintenance
Starfsmaður í viðhaldsteymi á Langjökli
Into the Glacier leitar að starfsmanni í viðhaldsteymi sitt sem er með starfsstöð í Húsafelli. Viðhaldsteymið sér um viðhald ísganga og fasteigna í eigu Into the Glacier ehf.
Into the Glacier
Er vaxandi fyrirtæki í ferðaþjónustu með starfsstöð bæði í Reykjavík og Húsafelli. Félagið starfrækir ísgöngin á Langjökli og er með daglegar ferðir þangað allt árið um kring. Hjá fyrirtækinu starfar þéttur hópur af hæfileikaríku fólki sem tekst á við margskonar verkefni á næststærsta jökli Íslands. Starfið hentar bæði fólki sem býr á Vesturlandi sem og á höfuðborgarsvæðinu þar sem ferðir eru til og frá starfsstöð daglega. Starfsmönnum er einnig boðið að gista í starfsmannahúsum í Húsafelli í vaktalotum.
Lýsing á starfinu
Viðhaldsteymið sér um viðhald í ísgöngunum á Langjökli og um viðhald á öllum tækjum, trukkum, bílum og húsnæði Into the Glacier ehf.
Trukka-, véla- og bílafloti ITG er umfangsmikill og nóg af verkefnum er að taka. Verkefnin eru krefjandi, margvísleg og skemmtileg og fáir dagar eru eins. Við leitum að starfsmanni sem er tilbúinn til að ganga til verks, er vanur ýmis konar vélavinnu og reynslu af akstri stórra ökutækja. Unnið er á viku - viku kerfi, og í teymi alla daga.
Hæfniskröfur
- Vinnuvélaréttindi (stóra prófið), reynsla er æskileg.
- Ökuréttindi (C & D).
- Iðnmenntun er mikill kostur, s.s. rafvirkjun, smíði, vélstjórn ofl.
- Þekking og reynsla af viðgerðum og bilanagreiningu bíla og/eða tækja.
- Skipulagshæfni og verkvit eru skilyrði.
- Gott er að viðkomandi sé duglegur til verka og stundvís.
- Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er skilyrði þar sem unnið er í teymi.
- Meirapróf
- Vinnuvélaréttindi kostur













